Forseti Íslands heimsækir Móðurmál – samtök um tvítyngi

English version is below ↓

Laugardaginn 14. nóvember kom Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, í heimsókn til Móðurmáls – samtaka um tvítyngi í Fellaskóla. Börn úr ólíkum tungumálahópum komu saman í sal skólans og tóku hlýlega á móti forsetanum með söng.

Börnin sungu lagið Róa eftir Væb áður en þau héldu til kennslustunda. Forsetinn heimsótti síðan nokkrar kennslustofur, ræddi við nemendur og fékk að sjá hvað þau eru að læra í móðurmálsskólunum á laugardögum. Hún hitti einnig stjórn Móðurmáls og kynnti sér starf samtakanna nánar.

Í samtölum sínum við börnin lagði forsetinn áherslu á mikilvægi þess að þau fái tækifæri til að rækta og viðhalda móðurmáli sínu samhliða því að læra íslensku.

Móðurmál býður upp á kennslu í 25 tungumálum og yfir 900 börn verja tíma á laugardögum í að læra og efla móðurmál sitt. Í Fellaskóla er meðal annars kennt á pólsku, serbnesku og úkraínsku. Í Hólabrekkuskóla er boðið upp á kennslu í fjölmörgum öðrum tungumálum, svo sem spænsku, filippseysku, tékknesku, slóvakísku, ungversku, arabísku, farsí, kóresku og rússnesku. Starf samtakanna snýst þó um meira en tungumálakennslu. Það hjálpar börnum einnig að styrkja sjálfsmynd sína, viðhalda tengslum við menningararf sinn og verða hluti af samfélagi þar sem fjöltyngi fær að blómstra.

Heimsóknin var ánægjuleg og eftirminnileg fyrir bæði börn og fullorðna. Hún var dýrmætt tækifæri til að kynna forsetanum fjölbreytt starf Móðurmáls og sýna þann áhuga og þá elju sem börnin leggja í að læra og varðveita tungumál sín.

Við hjá Móðurmáli þökkum forseta Íslands kærlega fyrir heimsóknina og þann einlæga áhuga sem hún sýndi starfi okkar.

Frétt um heimsókn á vef forseta er hér.

Sjá Facebook síðu Móðurmáls hér.

President of Iceland Visits Móðurmál – Association on Bilingualism

On Saturday, November 14, Fellaskóli welcomed a very special guest when Halla Tómasdóttir, the President of Iceland, visited Móðurmál – the Association on Bilingualism. Children from different language groups gathered in the school hall and warmly welcomed the President with a song.

The children sang Róa by Væb before heading to their classrooms. The President then visited several classrooms, spoke with the students, and had the opportunity to see what they are learning at the mother tongue schools on Saturdays. She also met with the board of Móðurmál and gained further insight into the association’s work.

During her conversations with the children, the President emphasized the importance of giving them opportunities to develop and maintain their mother tongue while also learning Icelandic.

Móðurmál offers classes in 25 languages, and more than 900 children dedicate time on Saturdays to learning and strengthening their mother tongue. At Fellaskóli, classes are offered in Polish, Serbian, and Ukrainian, among other languages. At Hólabrekkuskóli we offer many more – such as Spanish, Filipino, Czech, Slovak, Hungarian, Arabic, Farsi, Korean and Russian. But the association’s work goes beyond language education. It also helps children strengthen their sense of identity, maintain connections with their cultural heritage, and become part of a community where multilingualism can thrive.

The visit was a truly enjoyable and memorable occasion for both children and adults. It was a valuable opportunity to introduce the President to the diverse activities taking place within Móðurmál and to highlight the enthusiasm and dedication of the children as they learn and preserve their languages.

We at Móðurmál would like to sincerely thank the President of Iceland for her visit and for the genuine interest she showed in our work.

The news about the visit on the official homepage of the President is here.

Visit our Facebook page: https://www.facebook.com/Modurmal/

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *