Samtök tungumálakennara á Íslandi (STÍL) hafa gefið út sérstakt afmælisrit Málfríðar, tímarits tungumálakennara, í tilefni af 40 ára afmæli samtakanna. Ritið var kynnt á afmælishátíð STÍL sem haldin var 26. september 2026 í Veröld – húsi Vigdísar í Reykjavík, á evrópska tungumáladeginum. Útgáfan markar ánægjuleg tímamót í sögu samtakanna og vekur vonir um að hægt verði að endurvekja reglubundna útgáfu tímaritsins.
Málfríður – faglegur vettvangur tungumálakennara
Málfríður hefur um áratugaskeið verið mikilvægur vettvangur fyrir miðlun þekkingar, reynslu og hugmynda um tungumálanám og tungumálakennslu á Íslandi. Tímaritið hefur skapað tækifæri fyrir kennara og fræðafólk til að deila kennsluhugmyndum, fjalla um nýjungar í tungumálamenntun og taka þátt í faglegri umræðu þvert á tungumál og skólastig.
Tímaritið kom lengi vel út tvisvar á ári, en útgáfa þess hefur legið niðri um nokkurt skeið. Með afmælisritinu vilja STÍL minna á mikilvægi sameiginlegs faglegs vettvangs fyrir tungumálakennara og leggja grunn að áframhaldandi miðlun þekkingar og reynslu á sviði tungumálamenntunar.
Fjörutíu ára saga samstarfs
STÍL voru formlega stofnuð 17. október 1985 og fyrsti stjórnarfundur samtakanna var haldinn í janúar 1986. Stofnaðilar voru félög dönsku-, ensku-, frönsku- og þýskukennara. Síðan hafa samtökin stækkað og starfsemi þeirra orðið fjölbreyttari. Í dag eiga einnig aðild að STÍL félög spænskukennara, kennara í íslensku sem öðru máli í gegnum Ísbrú og kennara í móðurmálskennslu í gegnum Móðurmál – samtök um tvítyngi. Félög ítölsku-, norsku- og sænskukennara hafa einnig átt aðild að samtökunum á ýmsum tímabilum.
STÍL hafa frá upphafi unnið að því að efla tungumálakennslu og starfsþróun kennara með námskeiðum, vinnustofum, ráðstefnum og alþjóðlegu samstarfi. Samtökin taka meðal annars þátt í starfi Alþjóðasamtaka tungumálakennarafélaga (FIPLV), norræn-baltnesku samstarfi tungumálakennarafélaga (NBR) og samstarfi við Evrópsku tungumálamiðstöðina (ECML).
Afmælishátíð á evrópska tungumáladeginum
Útgáfu afmælisritsins var fagnað á hátíð STÍL í Veröld – húsi Vigdísar, þar sem komu saman tungumálakennarar, fyrrverandi og núverandi félagsmenn, nemendur og samstarfsaðilar. Dagskráin sameinaði upprifjun á sögu samtakanna og umfjöllun um framtíð tungumálamenntunar.
Auður Hauksdóttir og Auður Torfadóttir rifjuðu upp aðdraganda stofnunar STÍL og mikilvægi samstarfs tungumálakennara undanfarna fjóra áratugi. Mia Smith, formaður samtaka tungumálakennara í Svíþjóð, flutti erindi um þróun tungumálamenntunar í sænskum skólum, núverandi áskoranir og fyrirhugaðar námskrárbreytingar árið 2028.
Almar Steinn Þorgeirsson, handhafi nemendaverðlauna STÍL 2026 og nemandi í spænsku við Háskóla Íslands, flutti erindið Töfrar tungumálanna og sagði frá því hvernig spænskunám hefði víkkað sjóndeildarhring hans og opnað ný tækifæri.
Guðjón Þorgils Kristjánsson, sigurvegari Söngkeppni framhaldsskólanna 2026, opnaði hátíðina með söng. Danilo Nava var kynnir og tímastjóri og Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar Háskóla Íslands, fulltrúi Íslands í stjórn Evrópsku tungumálamiðstöðvarinnar og ritari STÍL, lauk dagskránni með hugleiðingum um evrópska tungumáladaginn.

Tungumálamenntun skiptir meira máli en nokkru sinni fyrr
Íslenskt samfélag er lítið málsamfélag með víðtæk alþjóðleg tengsl og sífellt fjölbreyttara tungumálalandslag. Tungumálakunnátta er því ekki aðeins mikilvæg fyrir nám og atvinnulíf, heldur einnig fyrir samskipti, menningarlæsi, samfélagsþátttöku og gagnkvæman skilning.
STÍL leggja áherslu á að tungumálanám opni leiðir að öðrum menningarheimum, víkki sjóndeildarhring nemenda og stuðli að samtali, lýðræði og friði. Til þess þarf öfluga tungumálamenntun og tækifæri fyrir kennara til faglegs samstarfs og starfsþróunar.
Útgáfa afmælisrits Málfríðar er því bæði áminning um öflugt starf tungumálakennara undanfarna fjóra áratugi og hvatning til áframhaldandi samstarfs. Með ritinu fagna STÍL sögu sinni og leggja um leið áherslu á mikilvægi þess að tungumálakennarar hafi sameiginlegan vettvang til að miðla þekkingu, reynslu og nýjum hugmyndum um tungumálamenntun á Íslandi.
