Bókasafn Móðurmáls Celebrates Its 10-Year Anniversary!

Scroll down for the Icelandic version of this article.

We are thrilled to announce that Bókasafn Móðurmáls (the Móðurmál Library) is celebrating its 10-year anniversary! It has been a beautiful decade of fostering, supporting multilingualism and multilingual families, and sharing the joy of reading. Huge congratulations and thank you to everyone who has been part of this journey!

Rósa Björg Jónsdóttir, the founder of Móðurmál library, has been the project manager of the library since the beginning, developed the concept, bought and registered new books in the national library system Gegnir, organized exchange book markets of books in foreign languages, worked with volunteers, presented the library at conferences, and created promotional materials. She has received the Order of the Falcon for her tireless work; the news from 21 July 2021 can be seen here.

Over the past ten years, our library has grown tremendously. Today, we are proud to offer a collection of 10,000 books dedicated to children and youth, representing 100 languages. These valuable resources are readily available for families, mother tongue groups, and all libraries across Iceland. We provide interlibrary loans to public libraries as well. Our goal is to help children connect with their roots and strengthen their mother tongues, and we are excited to see this impact continue to grow. 

The library has worked as one of the member groups within Móðurmál, and it will follow their form by establishing itself as a non-profit organization in the fall 2026. It will thus become independent of Móðurmál while belonging to the association as a strong member.

Happy reading!

Bókasafn Móðurmáls fagnar 10 ára afmæli sínu!
Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að Bókasafn Móðurmáls fagnar nú formlega 10 ára afmæli sínu! Þetta hefur verið yndislegur áratugur tileinkaður því að efla tvítyngi, styðja fjöltyngdar fjölskyldur og deila lestrargleði. Innilegar hamingjuóskir og kærar þakkir til allra sem hafa tekið þátt í þessari vegferð með okkur!

Rósa Björg Jónsdóttir, stofnandi Bókasafns Móðurmáls, hefur verið verkefnastjóri safnsins frá upphafi, þróað hugmyndafræði þess, keypt og skráð nýjar bækur í landskerfi bókasafna, Gegni, skipulagt skiptibókamarkaði með bækur á erlendum tungumálum, unnið með sjálfboðaliðum, kynnt bókasafnið á ráðstefnum og útbúið kynningarefni. Hún hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir óþrjótandi starf sitt og má sjá fréttina frá 21. júlí 2021 hér.

Á síðastliðnum tíu árum hefur bókasafnið okkar vaxið gríðarlega. Í dag erum við stolt af því að geta boðið upp á safn 10.000 bóka fyrir börn og ungmenni á 100 mismunandi tungumálum. Þessi dýrmæti efniviður stendur fjölskyldum, móðurmálshópum og öllum bókasöfnum á Íslandi til boða. Við sjáum einnig um millisafnalán til almenningsbókasafna. Markmið okkar hefur ávallt verið að hjálpa börnum að tengjast rótum sínum og efla móðurmálið og við hlökkum til að sjá þessi jákvæðu áhrif halda áfram að vaxa.

Bókasafnið hefur starfað sem einn af aðildarhópum innan Móðurmáls og mun fylgja fordæmi þeirra með því að stofna eigin félagasamtök sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni haustið 2026. Það verður þannig sjálfstætt gagnvart Móðurmáli en tilheyrir áfram samtökunum sem öflugur aðili.

Njótið lestursins!

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *