Nýtt skólaár 2026-2027 er að byrja!

Við erum ánægð að byrja okkar 32. starfsár. Samtökin voru stofnuð árið 1994 af fimm tungumálahópum, en eru sterk saman í dag með 23 móðurmálshópa: albanska, arabíska – Arabic Assalam, Arabíska er tungumálið mitt, Bókasafn Móðurmáls, filippseyska, franska, gríska, japanska, kóreska, litháíska, Móðurmál Norðurlands, pólska, persneska, portúgalska, rússneska (MIR), rússneska (leiklistarhópur fyrir fjöltyngd börn), serbneska, slóvakíska, spænska, tékkneska, ungverska, úkraínska, Vinalestur Heiðrúnar, þýska.

Við erum þakklát fyrir stuðning Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar en í sumar tókst aftur að undirrita samning um afnot húsnæðis í Breiðholti, í Hólabrekkuskóla og Fellaskóla, á laugardögum. Á mynd fyrir neðan er Renata formaður Móðurmáls með Lovísu skólastjóra og Guðbjörgu aðstoðarskólastjóra Hólabrekkuskóla. Jafnframt erum við afar þakklát Gerðubergi – menningarmiðstöð sem leyfir okkur að halda mánaðarlega fundi þar og nýta húsnæði fyrir viðburði.

Móðurmál er með fleiri samstarfsaðila sem styðja við starfsemina á einn eða annan hátt. Heimili og skóli – landssamtök foreldra eru orðin systursamtök Móðurmáls og samstarfið gott og reglulegt. Til að mynda verður starfsnemi hjá báðum samtökum í haust sem kemur frá Tékklandi á Erasmus styrk. Móðurmál er eitt af félögum í STÍL – samtökum tungumálakennara sem halda upp á sitt 40. afmæli í september.

Haustið 2026 verður starfsnemi við Móðurmál og Heimili og skóli, Kristýna Hronová, sem kemur frá Tékklandi á Erasmus styrk. Hún mun hjálpa við ýmis verkefni, meðal annars verður hún í Hólabrekkuskóla á laugardögum að aðstoða móðurmálshópana okkar.

Margt er á döfinni í ár og stjórn Móðurmáls hlakkar til að starfa með hópunum, samstarfsaðilunum og að halda áfram að beita sér fyrir rétti barna að nota og njóta móðurmála sinna, sem og fyrir hagsmunum foreldra af erlendum uppruna. Skráning er hafin og við hvetjum kennara og fagfólk að upplýsa foreldra af erlendum uppruna um starfsemi Móðurmáls. Tengiliðir í móðurmálshópa, netföng, samfélagsmiðlar og vefsíður einstakra hópa er að finna hér: Móðurmál – The Association on Bilingualism

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *