Fjölmenning, samvera og fjölbreytileiki í Menningargarðinum

Menningargarðurinn fór fram í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum laugardaginn 30. maí 2026 við mjög góðar undirtektir. Þar var fjölbreytileikanum fagnað með fjölbreyttri dagskrá þar sem matur, menning, listir og samvera ólíkra menningarheima voru í forgrunni.

Gestir gátu notið matar frá ólíkum löndum, handverks, listasýninga, tónlistar og sviðsatriða auk fjölbreyttrar og fræðandi dagskrár fyrir börn og fjölskyldur. Viðburðurinn skapaði dýrmætt tækifæri til að kynnast ólíkum menningarheimum, smakka nýja rétti og eiga góða samveru í fjölbreyttu samfélagi.

Móðurmál- samtök um tvítyngi og Heimili og skóli tóku þátt í viðburðinum og kynntu starfsemi sína fyrir gestum. Á básnum gafst gott tækifæri til að ræða við börn, foreldra og fjölskyldur um mikilvægi móðurmáls, fjöltyngis og öflugs samstarfs heimila, skóla og samfélags.

Við þökkum Menningarsendiherrum, Fjölskyldu- og húsdýragarðinum og öllum þeim sem komu að viðburðinum kærlega fyrir ánægjulegan dag. Sérstakar þakkir fá gestir fyrir komuna, áhugaverð samtöl og góða samveru.

Leave a comment

Your email address will not be published. Required fields are marked *