Móðurmál hefur boðið uppá móðurmálskennslu í fleiri en tuttugu tungumálum (öðrum en íslensku) fyrir fjöltyngd börn síðan 1994. Íþrótta og tómstundaráð Reykjavíkur og síðan Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar, sem og aðrar stofnanir, hafa stutt við starfsemina fjárhagslega eða á annan hátt. Sjálfboðaliðar og foreldrar hafa unnið stærsta hlut allrar dýrmættrar vinnu.
Móðurmál var stofnað árið 1994 sem Samtök foreldra tvítyngdra barna í þeim tilgangi að þróa faglega móðurmálskennslu með tungumálanámskrá og skýrum markmiðum. Móðurmál – samtök um tvítyngi hafa sett sér eftirfarandi markmið árið 2014:
- Að styðja við móðurmálshópa og móðurmálskennara
- Að vinna saman með foreldrum fjöltyngdra barna til að skapa börnunum tækifæri til að læra þeirra móðurmál
- Að taka þátt í rannsóknum um fjöltyngi og móðurmál
- Að þróa móðurmálskennslu
- Að styðja við virkt fjöltyngi í samfélaginu
- Að efla samstarf, inngildingu og félagslega virkni barna og foreldra
Starfsemi Móðurmáls er meðal annars:
- Reglulegir móðurmálstímar
- Fræðsla fyrir foreldra, stofnanir og almenning
- Fagleg þróun móðurmálskennara
- Samvinna við aðrar stofnanir (Reykjavíkurborg, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Menningarmiðstöð Gerðuberg, Tungumálatorg, Háskóli Íslands osf.)
- Útgáfa (foreldra- og kennarabæklingar um fjöltyngi)
Samtökin Móðurmál eru þakklát frú Vigdís Finnbogadóttur, fyrri forseta Íslands og talsmanni tungumála í gegnum hennar Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur).
Móðurmál þakkar einnig eftirfarandi verðlaun:
- 2008. “Vel að verki staðið” Viðurkenning Alþjóðahúsins fyrir vinnu í innflytjendamálum á Íslandi. Viðurkenning var afhent af forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni.
- 2014. “Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins” í flokki “Frá kynslóð til kynslóðar”. Viðurkenning var afhent af forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni.
- 2016. “Foreldraverðlaun Heimilis og skóla” (Parents’ award from the National Parents’ Association). For mother tongue teaching of bilingual children.
- 2018. “Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla” (Encouragement award from the National Parents’ Association). For the project Allir með! –let´s talk about the school culture in Iceland– did in collaboration with SAMFOK association
- 2019. “Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar” (Human rights award of the City of Reykjavík). For teaching children their mother tongues.